Ferill 464. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1486 – 464. mál.
Frumvarp til laga
um dánarvottorð, krufningar o.fl.
(Eftir 2. umr., 2. júní.)
Ritun dánarvottorðs.
1. gr.
Líkskoðun.
2. gr.
Andist maður á heilbrigðisstofnun ber læknir sá sem annaðist hinn látna á stofnuninni eða yfirlæknir viðkomandi deildar ábyrgð á að líkið verði skoðað.
Andist maður utan heilbrigðisstofnunar skal læknir sá sem stundaði hinn látna í banaleg
Við óvænt dauðsföll eða ef ekki tekst að ná til læknis sem stundaði hinn látna í banaleg
Tilkynning til lögreglu.
3. gr.
1. ætla má að andlát tengist refsiverðu athæfi, sjálfsvígi eða andláti af völdum slyss,
2. maður hefur fundist látinn,
3. dauðsfall er óvænt,
4. maður andast í fangelsi eða á öðrum áþekkum stað eða
5. ætla má að dauðsfall megi rekja til mistaka, vanrækslu eða óhappatilviks við læknismeðferð.
Réttarlæknisfræðileg líkskoðun.
4. gr.
1. andlát beri að svo löngu eftir slys að lögregla telji slíka skoðun óþarfa í ljósi fyrirliggjandi upplýsinga eða
2. lögregla og læknir eru sammála um að dauðdaginn hafi verið eðlilegur.
Réttarlæknisfræðileg líkskoðun er gerð af lögreglu og lækni í sameiningu.
Krufning.
5. gr.
1. hafi hinn látni eftir að hann varð sjálfráða samþykkt krufningu skriflega eða
2. nánasti venslamaður hins látna hafi samþykkt krufningu, enda þyki sannað að hún sé ekki í andstöðu við vilja hins látna.
Þurfi að afla samþykkis nánasta venslamanns fyrir krufningu skal læknir veita upplýsingar um tilgang og markmið krufningarinnar.
Maka, börnum, ef hinn látni átti ekki maka, foreldrum, ef hinn látni var barnlaus, eða syst
Ef gera á réttarlæknisfræðilega líkskoðun eða réttarkrufningu er óheimilt að kryfja lík í læknisfræðilegum tilgangi eingöngu.
Réttarkrufning.
6. gr.
1. þegar dauðsfall verður rakið til refsiverðrar háttsemi eða ef ekki reynist unnt að útiloka slíkt með fullnægjandi hætti, eða þegar slík krufning er talin nauðsynleg til að koma í veg fyrir að síðar vakni grunsemdir um að dauðsfallið megi rekja til refsiverðs verknað
2. þegar dánarorsök verður ekki með viðunandi hætti ákvörðuð með réttarlæknisfræðilegri líkskoðun.
Í öðrum tilvikum tekur lögregla ákvörðun um nauðsyn réttarkrufningar.
Dómsúrskurður um réttarkrufningu.
7. gr.
Samþykki nánasti venslamaður ekki réttarkrufningu skal lögregla leita úrskurðar dómara um hana.
Útgáfa dánarvottorðs.
8. gr.
Hafi andlát verið tilkynnt lögreglu má ekki rita dánarvottorð fyrr en hún hefur ákveðið að ekki sé ástæða til réttarlæknisfræðilegrar líkskoðunar eða réttarkrufningar.
Ef réttarlæknisfræðileg líkskoðun er gerð skal dánarvottorð ritað af lækninum sem tók þátt í skoðuninni. Læknir sem framkvæmir réttarkrufningu ritar dánarvottorð.
Umönnun líks.
9. gr.
Meðferð dánarvottorðs og heimild til útfarar.
10. gr.
Venslamaður afhendir dánarvottorðið sýslumanni í því umdæmi þar sem hinn látni átti lögheimili á dánardægri eða ætla má að dánarbúi verði skipt samkvæmt ákvæðum laga um skipti á dánarbúum o.fl.
Nú á ákvæði 2. mgr. ekki við, t.d. vegna búsetu hins látna erlendis, og skal þá afhenda dánarvottorðið sýslumanni í því umdæmi þar sem útför hins látna verður gerð.
Sýslumaður afhendir venslamanni staðfestingu þess að andlát hafi verið tilkynnt og má ekki gera útför nema sá sem hana annast hafi fengið slíka staðfestingu.
Sýslumaður sendir dánarvottorð svo fljótt sem kostur er til Hagstofu Íslands.
Hagstofan semur upp úr dánarvottorðum skýrslur um dánarorsakir hér á landi.
Tilkynningar vegna andvana fæddra barna.
11. gr.
Flutningur líka úr landi.
12. gr.
Refsingar.
13. gr.
Reglugerðarheimild.
14. gr.
Ráðherra skal setja í reglugerð ákvæði um:
1. Ritun dánarvottorða, að fengnum tillögum landlæknis.
2. Framkvæmd réttarlæknisfræðilegrar líkskoðunar, þar á meðal um lágmarkskunnáttu lækna sem gera réttarlæknisfræðilega líkskoðun.
3. Réttarkrufningu.
4. Hvernig Hagstofu Íslands verði tilkynnt um andvana fædd börn.
Gildistaka.
15. gr.
Brottfall laga.
16. gr.
Breyting annarra lagaákvæða.
17. gr.
1. Lög um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, nr. 36 4. maí 1993:
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:
a. 1. mgr. orðast svo:
Óheimilt er að greftra lík eða brenna nema staðfesting sýslumanns um að andlát hafi verið tilkynnt liggi fyrir.
b. Við greinina bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Óheimilt er að setja lík andvana fædds barns eða látins ungbarns í kistu með öðru líki nema hlutaðeigandi presti eða safnaðarstjóra hafi áður verið tilkynnt það. Út
2. Lög um meðferð opinberra mála, nr. 19 26. mars 1991:
2. mgr. 70. gr. laganna orðast svo:
Réttarlæknisfræðileg líkskoðun skal fara fram þegar rannsóknari telur það nauðsyn
3. Lög um þjóðskrá og almannaskráningu, nr. 54 27. apríl 1962:
a. 3. tölul. 1. mgr. 4. gr. laganna orðast svo:
3. Skýrslur héraðsdómara til Hagstofunnar um úrskurði þar sem heimilað er að fara með bú horfinna manna sem látinna og dóma um að horfnir menn skuli taldir látn
b. Í stað orðsins „sóknarpresta“ í 2. mgr. 6. gr. laganna kemur: sýslumanna.
c. 2. málsl. 1. mgr. 7. gr. laganna fellur brott.
4. Lög um brottnám líffæra og krufningar, nr. 16 6. mars 1991:
a. II. kafli laganna fellur brott.
b. Heiti laganna verður: Lög um brottnám líffæra.